Helstu fréttir
Á að alfriða stórlaxinn
Haldið var merkilegt erindi á Hótel Loftleiðum í gær, þar voru samankomnir helstu sérfræðinga okkar Íslendinga í laxafræðum. Tilefnið var málþing um stöðu stórlaxins hér á landi og einnig var þetta ársfundur veiðimálastofnunnar.
Veiðimálastofnun kynnti lærða veiðispá fyrir þetta ár. Samkvæmt Guðna Guðbergssyni má vænta örlítið minni laxveiði í ár en í fyrra og eru það eðlilegar sveiflur. Veiðin seinustu 3 ár hefur verið mjög góð, en ef menn taka Rangárnar í burtu horfir öðruvísi við og má þá segja að veiðin hafi minnkað seinustu tvö ár eftir að hafa náð hámarki 2005.
Það má gera ráð fyrir að bleikjuveiðin á landinu verði svipuð og seinustu ár og er það ekki gott þar sem hún hefur dregist töluvert saman. Veiði á sjóbirtingi og urriða hefur einnig dregist saman en reyndar var búin að vera mikil auknin seinustu ár þannig má kannski segja að veiðin sé ef til vill að jafnast út.
Rétt er að minnast á að það er mælt til þess að menn reyni að vernda bleikjustofna til þess að þeir nái að jafna sig og er þeim tilmælum beint til veiðimanna og veiðiréttarhafa.
Málþingið um stórlaxinn var mjög merkilegt og staðfest grunur mann að það sé mjög mjög alvarlegt ástand á stórlaxinum. Stórlaxinn er hreinlega í útrýmingarhættu, þess vegna þarf að grípa til rótækra aðgerða. Það þarf jafnvel að friða stórlaxinn með stjórnvaldsaðgerðum samkvæmt Árna Ísaksyni veiðimálastjóra.
Ljóst er að ástandið er mjög alvarlegt víða hlutfall stórlaxins minnkar sífellt og bendir Sigurður Guðjónsson á að hann gæti hreinlega dáið út fyrir árið 2020.
Farið var yfir frábærar aðgerðir í Vatnsdalsá og síaukið hlutfall stórlax þar vegna vernduraðgerða, eða skyldu sleppinga á öllum laxi. Það er alveg ljóst að það er að svínvirki.
Við almennir veiðimenn þurfum að spyrja okkur hvað getum við gert? Viljum við að stórlaxinn hreinlega deyi út, ég held að það sé nokkuð ljóst að fæstir ef nokkrir eru á þeirri skoðun og í ljósi þess þá þurfum við hreinlega að taka okkur til og sleppa öllum stórlaxi undantekningarlaust.
Án þess lagast ástandið ekki. Við höfum beint þeim tilmælum til veiðimanna á okkar vegum að hafa þetta í huga, við höfum ekki sett þetta sem neina reglu en við treystum veiðimönnum til þess að bera hug stórlaxins fyrir brjósti og sleppa honum þannig að hann geti stuðlað að stækkun stofnsins en það gerir hann bara í ánni ekki í frystikistunni.
kv, Arnar
