Helstu fréttir
Veiðitímabilið byrjar á þriðjudaginn
Nú eru flestir veiðmenn orðnir léttir í lundu. Brúnin lyftist og bros færist yfir andlitið. 1. apríl er byrjunin, það fara alls ekki allir að veiða strax í byrjun en það virðist vera nóg fyrir flesta að vita af möguleikanum, ef manni langar að skreppa þá getur maður kíkt í vatnaveiði eða jafnvel kíkt austur og rennt fyrir sjóbirting.
1. apríl þýðir líka að á næstu vikum opna öll vötn, allar ár og það styttist í laxinn. Fyrsta laxveiðiáin okkar opnar 5. júní en það er Blanda, síðan opnar þær allar hver af annari.
Okkur heyrist á flestum að það sé nokkur bjartsýni í gangi, nóg verður allavega af vatni eins og aðstæður eru í dag. Við eigum þó nokkur veiðileyfi í blábyrjun í ánum okkar og eru þau á fínu verði.
Fyrir þá sem hafa prófað, þá er fátt sem jafnast á við að setja í grálúsugan nýgenginn voralx. Maður er alltaf jafn hissa þegar sá fyrsti tekur, tilfinningin er engri lík, veiðifélagarnir missa sig í gleði og þú ert sáttur, það eru allir sáttir við einn í vortúr en auðvita heldur maður áfram að veiða en kannski með hangandi hendi enda er tilganginum náð...sá fyrsti er kominn á land!!
Ef þið hafið áhuga að því að fá nánari upplýsingar um leyfi í vorlaxinn hafið þá endilega samband, við eigum líka nokkur leyfi í vorveiðinni í silunga eða leyfi frá 1. apríl
