Helstu fréttir
Stærstu Sjóbirtingar í heiminum - hér hjá okkur
Greinarhöfundi finnst fátt eitt skemmtilegra en að landa stórhvelum þegar hann er við veiðar, einn risa fiskur, svona “mammúti” gerir minninguna einhvernveginn svo ljúfa, ekki það að minni fiskar séu eitthvað leiðinlegir en tilhugsunin er bara allt,allt öðruvísi.

25pundari frá Toon Ken..
Mér finnst líka rosalega gaman af því að segja mönnum frá því þegar ég veiddi svona ferlíki, hvar ég veiddi fiskinn, á hvaða flugu, veðurfar og þar fram eftir götunum. Best þykir mér þó að geta veitt mönnum upplýsingar, frá fyrstu hendi, beint í æð og séð þá svo endurtaka leikinn sem ég hafði leikið áður svo ógleymanlega..

þessi er 27pund..
Það er einmitt það sem við gerum fyrir okkar veiðimenn sem ferðast til Argentínu hér hjá Lax-á og myndirnar hér að í kring ljúga engu, hver “mammúta” stærðin á fiskunum á eftir öðrum, vá maður..

Veiðimaður með einn 26punda..!
Við erum einmitt núna farinn að kynna veiðina í Argentínu fyrir næsta tímabil, og eitt af því sem verður nýtt á nálinni hjá okkur verður svokölluð “combo trip” þar sem veiðimenn fara á fleiri en eitt veiðisvæði í ferðinni og geta samtvinnað frábæra veiði og unaðslegt frí. Setjið ykkur í samband og veiðið í núinu...Argentína er málið..

Veiðimaður með 23punda silfraðan birting..
Frekari upplýsingar hjá axelo@lax-a.is eða í síma 557-6100
Kveðja...Axeló
