Helstu fréttir
Rio Grande með góða viku..og vel það
Vikan í Villa Maria gaf í heildina 125 sjóbirtinga(22.2 – 29.2), stærsti drekinn var 26pund, tuttugu stk yfir 15pund, 11 stk 20pund+, allur fiskur reyndist í flottu ásigkomulagi, firna sterkur og gefur ekkert eftir í baráttunni við veiðimenn síðan má að sjálfsögðu ekki gleyma öllum þeim fiski er menn misstu. Vikan sem nú líður er þegar kominn með 67 birtinga, sá stærsti 24pund..! Ert þú að fara eða hvað?
Það er lækkandi vatnsyfirborð, góður hiti og gin tært vatn þessa dagana, mikið af nýjum fiski er að ganga. Bestu flugurnar eru frekar litlar, með gúmmí vængjum sem og þurrflugur, greinilega yfirborðsveiði en samt hvíla stóru drekarnir á botninum og bíða eftir stóru snældunni sinni með réttu hreyfingarnar á hreinu.
Settu þig í samband... því draumaferðin er bara einu e-maili í burtu
