Helstu fréttir
Vorveiði, nokkrir flottir möguleikar í boði
Við bjóðum upp á margvíslega möguleika í vorveiði núna í næsta mánuði. Það eru margir sem eru byrjaðir að klæja í fingurnar að fara að kljást við silung. Núna eru aðeins 27 dagar í opnun veiðitímabilsins og því er um að gera að fara yfir þá möguleika sem við bjóðum upp á í vorveiði.
Fyrst ber að nefna veiðina sem við bjóðum upp á með veiðihúsi.
Tannastaðartangi í Soginu er skemmtileg vorveiði, veiðhús fylgir, í því er heittur pottur og öll helstu þægindi, veiðihúsið er alveg við bakkann og því stutt að fara í skjól fyrir vorvindunum. Það eru tvær stangir seldar saman á Tannastaðartanganum.
Vorveiði í Blöndu er annar möguleiki sem við bjóðum upp á, þetta er nýjung hjá okkur og byrjaði í fyrra, veiðihúsið Móberg fylgir með leyfunum, vorveiðisvæðið í Blöndu er geysi stórt, eða svæði II, III og IV, þetta er nánast ókannað svæði í vorveiði en eitt er víst það er nóg af silungi á svæðinu, sérstaklega bleikju. Seldar eru fjórar stangir í Blöndu vorveiði.
Við seljum einnig vorveiði án veiðihús, það eru svæði eins og Tungufljót silungasvæði, átta stangir, Vatnasvæði Lýsu, sex stangir og síðan erum við með í umboðssölu á www.Agn.is Brúará fyrir landi Spóastaða sem er frábært vorveiðisvæði.
kv, og nánari upplýsingar Arnar@lax-a.is
