Helstu fréttir
Menn eða mýs í Yokanga - Rússlandi
Vikuna 12 – 19 júlí 2008 býðst mönnum að sýna hvort þeir séu menn eða mýs þegar kemur að stórfiska tali því við bjóðum uppá alveg hreint magnað veiðisvæði í Rússlandi. Um er að ræða neðsta svæðið í hinni kyngimögnuðu Stórlaxa á Yokanga – Ostrovny. Hingað til hafa heimamenn eingöngu haft rétt til veiða þarna og erum við því að bjóða hér upp á algjöra nýjung.
Aðstaða fyrir veiðimenn verður eins sjarmerandi og frekast er því búðirnar verða tjaldbúðir með viðargólfum, 2 rúm í tjaldi og kamína, eitt samkvæmistjald þar sem menn borða og hittast, salernisaðstaða einnig til staðar. 10 stangir eru í boði þessa vikuna og fylgir guide með hverjum 2, ferðast er um á bátum með utanborðs motor sem og labbað töluvert.
Nú býðst þér þetta tækifæri, kæri veiðimaður, hér hjá okkur í laxá. Fyrsti útlendingurinn að veiða þetta svæði?og hana nú. Þetta er klárlega tækifæri fyrir alvöru menn sem vilja ná sér í stórlaxa á hverjum degi og sýna hvort þeir séu menn eða mýs
Frekari upplýsingar hjá axelo@lax-a.is
