Helstu fréttir
Dee býður upp í dans
Eins og ég minntist á fyrir helgi þá voru miklar líkur á að aðstæður í Dee færu að breytast. hækkandi vatn og hlýnandi veður er staðreynd. Mun meiri veiði hefur verið í ánni núna en undanfarin 3 ár á þessum tíma sem lofar mjög góðu fyrir alla þá veiðimenn sem eru á leiðinni þangað. Heildarveiðin í Dee í Febrúar voru 194 laxar, margir vel yfir 20 pundin. Staðarhaldarar segja mikið af fiski komið í ánna og að þeir hafi orðið varir við mikið af stórfiski, ekki slæmar fréttir þar á ferð.
Veðurspáin fyrir næstu daga spáir miklu roki sem á eflaust eftir að pirra einhvern veiðimanninn en best er jú að vingast við rokið og sjá hversu gott getur verið að eiga það sem vin við veiðar. Við eigum lausa 1 stöng dagana 31.mars til 2.apríl í þessa stórlaxa á, grípið það á meðan það gefst. Allar frekari upplýsingar axelo@lax-a.is eða í síma 557-6100
