Helstu fréttir
Mjög góð veiði í Argentínu
Mjög góð veiði hefur verið undanfarið í Rio Grande. Gærdagurinn var að gefa vel af sér, heildarveiðin var 21 sjóbirtingur og sá stærsti var 21 pund. Menn eru að nota mismunandi aðferðir við veiðarnar og hefur þurrflugan verið sterk undanfarið, ekki amalegt að sjá 21 punda ferlíki koma á fleygiferð upp á yfirborðið og negla fluguna á spegilsléttu yfirborðinu axelo@lax-a.is
