Helstu fréttir
Mokveiði í nýju holli – Rio Grande
Á laugardaginn byrjaði nýtt holl veiðar í Villa Maria, Rio Grande. Eftir ferðalagið til Rio Grande hafa menn verið frekar æstir í veiðar því heildarveiðin var 27 fiskar, sá stærsti 16pund. Það var logn allt kvöldið og náðu menn þar afleiðandi góðri yfirferð á ánna, meira að segja notuðust þeir við þurrflugur, með svona líka frábærum árangri. Ef veiðimennirnir halda svona áfram þá má Argentína fara að passa sig.
