Helstu fréttir
Svartá – kemur sífellt á óvart
Svartá er meðalstór bergvatnsá með 480 ferkm. vatnasvið. Meðalveiði er 293 laxar, minnst árið 1977, 46 laxar en mest 619 árið 1988. Sameiginlegt veiðifélag er með Blöndu og Svartá. Síðustu sumur hafa verið að fást 250 til 550 laxar í ánni og hefur samanlögð veiði í henni og Blöndu stungið nokkuð í stúf við frammistöðu margra annarra áa á Norðurlandi, sem hafa verið í niðursveiflu hin seinni ár Gott aðgengi er að veiðistöðum, þar sem þjóðvegurinn fram Svartárdal liggur meðfram ánni. Svartá er í Svartárdal og rennur í Blöndu í Langadal. Í Svartá er eingöngu veitt með flugu. Veiðisvæðið byrjar við veiðistaðinn Gullkistu en þar rétt ofan er Ármót sem hefur verið aflahæsti veiðistaðurinn í Svartá ár eftir ár. Þar ræður reyndar vatnshæð Blöndu mestu um. Efsti veiðistaður á lasxasvæðinu er Hvammsármót sem er suður af bænum Hvammi. (Blanda og Svartá, Gísli Pálsson, 2003) Veiðihúsið er innifalið í veiðileyfinu. Húsið er nýuppgert og snyrtilegt. Í húsinu eru 5 herbergi, þar af er eitt í aukahúsi öll herbergin eru tveggjamanna en alls fer vel um 10 manns. Góð setustofa og borðstofa. Verönd með heitum potti og aðverðahús og vöðlugeymsla í sérhúsi. Þarna eru 11 sængur og helsta leirtau fyrir 10 manns, uppþvottalögur og uppþvottabursti. Gasgrill og útvarp. Einnig er heitur pottur þar sem tilvalið er að mýkja skrokkinn og ýkja veiðisögurnar. Ef veiðimenn kjósa að vera í húsi þar sem boðið er upp á gistingu og fullt fæði er möguleiki að gista í nýja veiðihúsinu við Blöndu aðeins 10 mínutur í burtu.
