Helstu fréttir
Meðal betri laxveiðiáa á landinu – Laugardalsá
Þessi frábæra laxveiðiperla í vestri er án efa með betri laxveiðiám á landinu. Það sem gerir hana svona góða er að sjálfsögðu frábær aflabrögð en meðalveiði sl ára eru 400 laxar, góð meðalþyngd í afla að ógleymdu því að inn á milli veiðast stórlaxar. Staðsetning árinnar er utarlega við Ísafjarðardjúp og fyrir þá sem kjósa að vera út af fyrir sig við veiðar þá er þetta áin, fjarri mannabyggðum í fjallasælu vestfjarða. Veiðihúsið er rúmgott með 3 svefnherbergjum , stofu, eldhúsi og baðherbergi, aðgerðaraðstaða er í sérhúsi. Veiðimenn sem þarna hafa stundað veiðar eiga flestir afturkvæmt og láta vel af umhverfi, húsi og að sjálfsögðu veiði.
Frekari upplýsingar hjá axelo@lax-a.is
