Helstu fréttir
Verður jafn góð byrjun á Íslandi og í Skotlandi?
Menn sem við tölum við í Skotlandi eru mjög ánægðir þessa dagana. Vorveiðin hefur farið óvenjuvel af stað á þeim svæðum sem eru á okkar vegum. Veiðin í neðri Crathes hefur verið frábær, vanalega hafa menn verið að setja í kannski einn lax eða jafnvel í mesta lagi verið að sjá einn lax. En núna sjást laxar nokkuð víða og alltaf einhverjir sem enda á þurra.
Það hefur verið þumalputtaregla þegar veiðin hefur farið snemma af stað í Skotlandi þá hefur vorveiðin á Ísland verið góð. Það væri nú alls ekki leiðinlegt að fá loksins almennilega byrjun á laxveiðitímabilinu, þrátt fyrir að það verði aldrei jafn gott og það var í gamla daga þá ætti góð byrjun á nútíma mælikvarða að vera kærkomin breyting á deyfðinni sem var yfir byrjuninni á seinasta ári. Nú er bara að krossleggja fingurna og vona að sannleikskorn sé í gömlu spakmælunum!
kv, Arnar
