Helstu fréttir
Ein stöng eftir á frábærum tíma á Acha camp. Um er að ræða vikuna 21/6-28/6. Þetta er seinasta júní stöngin 2008.
Innifalið í Acha camp svæðinu eru fullt af sígildum hylum á Kola skaganum og einnig aðgangur að Acha ánni sjálfri. Acha búðirnar eru kjarninn á Ponoi staðsettar rétt fyrir ofan hið vel þekkta Ryabaga svæði, búðirnar eru rétt á milli ármóta Acha og Ponoi.
Veiði í hinum gríðarlega fallegu neðstu hyljum Acha árinnar eru að sjálfsögðu innifalin í þessu og geta menn því tekið með sér einhenduna og gárutúpurnar og veitt sig sadda í þessum heimahyljum
Athugið að 43% af öllum veiddum laxi á svæðinu er í tveggja ára lax. Það veiðast í kringum 2400 laxar á þessu stutta svæði að meðaltali á hverju ári.
Aðstæður eru eins og best er á kosið í Acha, það hefur verið bætt við 10 viðarkofum með tveimur rúmum, ofni ofl. Með þessu eru Pacha og Acha búðirnar þær einu í allri Ponoi ánni þar sem þú sefur ekki í tjaldi sem getur lekur af vatni og moskító flugum.
Nánari upplýsingar Steffan@lax-a.is eða www.lax-a.is/media//Pre_trip_information_for_Ponoi_2008_-_no_1.pdf
kv, Arnar
