Helstu fréttir
Ýmsar góðar fréttir
Það er góður gangur á flestum veiðisvæðum okkar þessa dagana. Fyrir austan eru Rangárnar í frábærum gír og gefa ekkert eftir, það lítur allt út fyrir að þær verði á toppnum í haust þegar lokatölur berast. Tungfljót í Biskupstungum hefur verið frábært, svæðið er að slá algerlega í gegn, það veiðast þarna á hverjum degi á milli 5-20 laxar í dag sem er frábært á 4 stangir og leyfi sem kostar aðeins 19.800 kr. á dag, það kom á land nú fyrir nokkrum dögum 17 punda merktur lax úr sleppingum fyrir 3 árum, þannig að stórlaxinn er þarna líka.
Nú eru efri svæðin í Ytri Rangá að koma inn og eru komnir nokkur hundruð laxar upp fyrir teljara, einnig eru komnir rúmir 150 laxar fyrir ofan Faxa í Tungufljóti á miðsvæðið sem eru frábærar fréttir.
Fyrir norðan heldur Blanda áfram að gefa vel, enda fer hún væntanlega ekki á yfirfall, við heyrðum í einum sem var við veiðar á seinasta sunnudag og var með einu stöngina á svæði 1 og veiddi 12 laxa, frábær veiði það. Miðfjarðará og Víðidalsá halda áfram að gefa ágætlega, en það vantar einfaldlega vatn á þeim slóðum.
Árnar fyrir vestan eru líka í góðum gír, Hvannadalsá er komin á skrið og veiðimaður sem var í henni í fyrradag veiddi 12 laxa, Langadalsá og Laugardalsá gefa líka vel, þó er byrjað að minnka aðeins vatnið í þeim sem hefur letjandi áhrif á veiðina eins og við má búast.
Silungsveiði í ánum okkar hefur verið með besta móti, menn hafa verið að lenda í góðri veiði í Norðurá í Skagafirði, sérstaklega fyrir ofan brú. Víðidalurinn silungasvæði hefur verið að gefa mikla og góða veiði. Silungasvæði Miðfjarðarár hefur líka verið gott og það sama má segja um vatnasvæði Lýsu, en eftir rigningar seinustu daga hefur veiðst mikið af fallegri bleikju og lax byrjaður að sjást og getur nú ekki verið langt í að sá fyrsti fari að veiðast.
Kv, Arnar
