Helstu fréttir
Miðsvæðið í Tungufljót
Þetta fallega svæði eru fyrir ofan spútnik svæði þessa árs hjá okkur. Tungufljót í Biskupstungum hefur gengið ótrúlega vel og er allt fullt af laxi í Faxa. En það sem fáir gera sér kannski grein fyrir er að miðsvæðið sem er kallað laxa og silungasvæði er að fyllast af laxi, það eru 127 laxar komnir upp fyrir teljara í Faxa og í morgun var 21 lax í gildrunni. Það er greinilegt að laxinn er að leiti upp í Einholtslæk þar sem sleppitjörnin er staðsett en það er einmitt á miðsvæðinu. Þetta er svæði sem er vert að skoða veiðleyfið kostar aðeins 5800 og laxinn er að hellast inn.
Kv,Arnar
