Helstu fréttir
Frábær sunnudagur í Lýsuvötnum
Vatnasvæði Lýsu er fjölskylduperla á Snæfellsnesi, þetta er svæði sem er frægt fyrir mikla silungaveiði og kynntist Jón Magnússon yfirleiðsögumaður því þegar hann skrapp með fjölskylduna á svæðið seinasta sunnudag. Nóg var að bleikju á staðnum og þó sérstaklega í lækjunum á milli vatnanna. Nú er reyndar kominn tími laxins á svæðinu, það veiðast alltaf einhver tugur laxa í Lýsuvötnum og hefur heildarveiðin reyndar mest farið upp í heila 400 laxa. Við látum myndirnar tala úr ferð Jóns.
Áhugasamir geta kíkt á www.agn.is og fengið nánari upplýsingar um Lýsuvötn
Kv, Arnar
