Helstu fréttir
Frábær veiði fyrir austan og ýmislegt annað
Það er ennþá frábær gangur í veiðinni fyrir austan. Í seinustu viku veiddust rúmir 500 laxar í Ytri Rangá sem er frábær veiði, þetta er í kringum 70 laxar á meðaltali á dag. En þessar frábæru tölur blikna þó í samanburði við Eystri Rangá en þar var meðalveiðin 120 laxar á dag í seinustu viku, ótrúlegur gangur fyrir austan.
Það er ennþá frekar rólegt fyrir norðan þó er Blanda kominn í tæpa 800 laxa sem er prýðisgott. Silungsveiðin í Víðidalsá hefur verið frábær seinustu daga, þeir sem voru við veiðar í fyrradag veiddu hátt í 50 silunga á einum degi og kræktu í tvo laxa, það virðist vera nóg af bleiku fyrir norðan, silungsveiðin í Miðfjarðará hefur líka verið góð. Þetta er góðar fréttir þar sem það hefur farið mikið fyrir fréttum um hnignandi sjóbleikjuveiði seinustu misseri, það virðist ekki eiga við allaveg fyrir norðan.
Kv, Arnar arnar@lax-a.is
