Helstu fréttir
Hvannadalsá 21-22 júni
Eigum enn til lausa tvo daga í næstum því fullbókaðri Hvannadalsá. Þettu eru einu dagarnir sem við eigum þangað til í lok tímabils eða 15 september. Hvanndalsá er falleg tveggja stanga á sem rennur í Ísafjarðardjúp samhliða Langadalsá. Hvannadalsá er styttri og vatnsmeiri en Langadalsá og með afbrigðum skemmtileg flugveiðiá, en allt agn er samt sem áður leyft í ánni.
kv, Arnar
