Helstu fréttir
Selur í Blönduósum
Veiðin hefur farið rólega af stað í Blöndu en menn eru að verða bjartsýnari því nú síðustu tvo daga hefur verið mikið að gera hjá Vigni Björnsyni við að skjóta sel en hann var búnin að skjóta eina 7 seli um hádegisbilið svo það bara hlítur að vera Lax á leiðinni upp, þess má einnig geta að stærsti straumur er núna þann 16 júní svo það eru hækkandi straumar með hverjum deginum.. Það verður mjög spennandi að fylgjast með næstu daga hvort veiðin detti af stað.
bestu kv Stefán
