Helstu fréttir

Laugardalsa1

Ýmsar fréttir

12.6.2007

Nú er veiði byrjuð í Laugardalsá, fyrsta hollið kom til veiða í morgun og bíðum við frétta frá þeim, Blanda, Straumarnir og Ferjukotseyrar eru allar að komast í gang. Veiðimenn sem voru í Blöndu í gær settu í 2 fiska og sáu 3, það byrjar hægt í Blöndu en fall er faraheill og vonumst við til þess að laxarnir séu að fara að hella sér inn með auknum straumi, það er stórstreymt 16 júní og má búast við að göngur fari að byrja núna þegar 3-4 dagar eru í stórstreymið. Mikið hefur sést af sel við ósinn í Blöndu og veitir það bara á gott, það er að laxinn sé að mæta, selurinn er auðvita ekkert fagnaðarefni en Vignir meindýraeyðir á Blönduósi er við selveiðar og gefur hann laxveiðimönnunum ekkert eftir. Reyndar hafa háhyrningar sést líka við ósinn sem eru á selaveiðum, því er kominn mikill og skemmtilegur fæðuhringur í Blöndu, háhyrningar að veiða sel, selur að veiða lax, og maður að veiða lax og sel reyndar líka. Enginn er nú á háhyrningsveiðum enda er það víst bannað.

Lítið hefur fréttst úr Straumunum og Ferjukotseyrum en okkar maður er að fara í Straumana í dag og frétta að vænta þaðan vona bráðar. Það sama á við um Ferjukotseyrar við höfum ekkert frétt en erum að vinna í að ná í veiðimenn sem hafa verið þar við veiðar. Það seinasta sem heyrðist var á sunnudaginn þar sem menn sáu lax en náðu ekki á land. Einhverjir hafa verið við veiðar í Tungufljóti á silungasvæðinu og sett í bolta urriða enda eru þeir í yfirstærð þarna í Biskupstungum. Þetta er það sem er að frétta í bili, en við erum alltaf á vatkinni og komum með fréttir von bráðar úr Blöndu, Laugardalsá, Ferjukotseyrum og Straumunum

kv, Arnar

arnar@lax-a.is



Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

DEE511

1.11.2012 : Dádýraveiði í Skotlandi

Við Hjá lax-á getum núna boðið uppá Roebuck veiði í Skotlandi en Roebuck eru lítil dádýr sem eru stygg og mjög skemmtileg að veiða. Veiðitímabilið byrjar í Apríl og endar í Oktober með einhverjum stefan@lax-a.is Lesa meira
 
DSC01863

30.10.2012 : Grænland 2013

Töluvert er um að menn séu byrjaðir að skoða Grænland fyrir næsta sumar en Grænland sló rækilega í gegn í fyrrasumar. Nýja veiðihúsið er hið glæsilegasta og hefur vakið mikla kátínu Lesa meira
 
Heklubyggd1(7)

13.7.2012 : Sumarhús í Heklubyggð til leigu

Við erum með tvö glæsilega sumarhús til leigu í Heklubyggð, landi Svínhaga við Ytri Rangá. Bústaðirnir eru byggðir á árunum 2004 til 2008 og eru mjög vel útbúnir. Báðir bústaðir eru vel útbúnir. Lesa meira
 
1

28.3.2012 : Vorljóð frá Sveini á Galtalæk

Vinur okkar og landeigandi á Galtalæk Sveinn Sigurjónsson sendi okkur fallegt vorljóð sem varð til í gærkvöldi. Afar skemmtilegt ljóð í tilefni vorkomu og þess að veiði hefst í Galtlæk eftir einungis nokkra daga.

Lesa meira
 
DSC00337

19.3.2012 : Kúba - Paredon 21-28. apríl

Eigum lausar tvær stangir á besta tíma á Kúbu fyrir Tarpon, Bonefish og Permit veiðar. Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við Árna arnibald@lax-a.is eða í GSM 898 3601.

Lesa meira
 
Axeló á Hreindýri8

20.2.2012 : 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða

Umhverfisstofnun hefur borist 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða. Endanlegur fjöldi er ekki enn ljós þar sem einhverjar umsóknir gætu verið á leiðinni í pósti. Heimilt verður að veiða 1009 dýr. Þegar allar umsóknir verða komnar í hús verður farið yfir þær með tilliti til hvort allir sem sækja um leyfi hafi tilskilin réttindi. Dregið verður úr gildum umsóknum í lok febrúar.

Lesa meira
 
4

16.2.2012 : Laxasetur Íslands óskar eftir aðstoð

Laxasetur Íslands opnar í sumar. Af því tilefni vantar okkur gamla muni sem tengjast lax- og silungsveiði á Íslandi. Munirnir verða til sýnis á setrinu ásamt upplýsingum um uppruna og sögu. Við leitum eftir munum ýmist gefins eða að láni.

Nánari upplýsingar veita verkefnastjórar sýningarinnar, Helga og Kristín hjá mekt.menningarmidlun@gmail.com

Lesa meira
 
RISE

7.2.2012 : RISE Kvikmyndahátíð haldin í annað sinn

RISE fluguveiði kvikmyndahátíð verður haldin í annað sinn 10. mars næstkomandi í Bío Paradís (Hverfisgötu 54) en hátíðin var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í febrúar á síðasta ári. Hátíðinni var gríðarlega vel tekið og var uppselt á sýninguna í fyrra. Sýningin hefst kl. 20:00 en húsið opna kl. 19:00.

Lesa meira
 
VididalsaRognv2

26.1.2012 : Glæsilegar myndir úr Víðidalsá

Rögnvaldur Guðmundsson stórveiðimaður sendi okkur þessar skemmtilegu veiðimyndir frá því í ágúst síðasta sumar. Hér sést og staðfestist að Víðidalsá er ein af stórlaxa ám Íslands. Þrátt fyrir að Víðidalsá hafi ekki náð sér á strik eins og svo marga aðrar á landinu skilaðu hún allnokkrum stórlöxum á land en hún endaði í 747 löxum.

Lesa meira
 
p7

12.1.2012 : Ungfugl tveir þriðju af veiðinni

Náttúrufræðistofnun hefur aldursgreint tæpar tvöþúsund rjúpur sem veiddar voru á síðasta tímabili. Flestar þeirra komu á Norðausturlandi, 682 talsins, svo Norðvesturlandi 417 en minnst af Suðurlandi 91. Alls veiddust 1295 ungfuglar en 651 fullorðnir.

Lesa meira
 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarfi 16 - 203 Kópavogur | s: 531 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar