Helstu fréttir
Það komu 17 laxar á land í síðustu viku
Veiðin fer batnandi með hverjum degi á Lower Grathes and West Durris í Dee á skotlandi. Það eru aðeins 4 stangir á svæðinu og afli síðustu viku var 17 vorlaxar ásamt góðum slatta af niðurgöngulaxi sem er ekki talin með. Bestu tíminn er að jafnaði Mars, Apríl, Maí, en síðustu 2 ár hefur Mars verið bestur.
Við eigum lausar 3 stangir vikuna 5-10 mars svo fyrir þá sem vilja byrja fyrr þá er þetta allveg kjörið. Stöngin á dag með leiðsögumanni kostar 30.000 kr
Þess má geta að það tekur um 2 klst að fljúga til skotlands og kostar það þessa viku frá 35.000 kr.
Frekari upplýsingar gefur stefan@lax-a.is
