Helstu fréttir
Árni í Argentínu
Ég kom til Buenos Aires núna 11.febrúar, þetta er tólfta árið mitt í Argentínu og ég er alltaf jafn spenntur einsog þetta væri fyrsta skiptið !
Í þetta skipti byrjaði ég á því að fara til Uruguay, til Colonia , Montevideo og til Punta del Este, frá Punta del Este tók ég flugvél og stefni nú á Rio Grande og verð þar í viku til að veiða Rio Grande sjóbirting. Það er auðvelt að mæla með fyrir veiðimenn að fara til Uruguay í 3-4 daga áður er þeir fara í sjóbirtinginn eða eftir á, það er yndislegt land. Ég heyrði að það hefði verið flóð í Rio Grande í síðustu viku og það hafi verið erfitt að veiða í nokkra daga, en allt er í orden núna og bestu aðstæður komnar og nýgenginn fiskur að koma inn.
Ég er í slæmu tölvusambandi í Rio Grande svo að í lok næstu viku set ég inn veiðifréttir, Árni.
