Helstu fréttir
Vetrareftirlit í veiðihús
Það var ekki vetrarlegt fyrir norðan í síðustu viku þegar ég heimsótti veiðihúsin í Víðidal og veiðihúsið við Blöndu í Langadal. Í veiðihúsinu í Víðidal eru fyrirhugaðar breytingar og voru teikningar skoðaðar og farið yfir málið með landeigendum. Yndislegt að komast í veiðihúsið og eftirvænting vegna komandi sumars lét á sér kræla........
Næsta heimsókn var í Langadalinn þar sem verið er að leggja síðustu hönd á nýja veiðihúsið þar. Allt tilbúið og tilhlökkun að opna það í vor. Færð að mestu góð og enginn snjór nema á Holtavörðuheiði og vorlegt fyrir norðan.....og hugurinn kominn á flug inní sumarið.......
Kær kveðja, Elín
Veiðihúsið í Víðidal
Langidalur í janúar
Veiðihúsið við Blöndu séð frá Ásum - í janúar
Veiðihúsið við Blöndu í janúar!
Fallegur himinn.....
Miðfjarðará í janúar
Snjór á Holtavörðuheiði og sumir lentu í vandræðum.....
