Helstu fréttir
Laxveiðin byrjar hjá Okkur 1 Febrúar
Það eru aðeins 9 dagar þangað til að Laxveiðiáin Dee í Skotlandi opnar en lax-á leigir þar tvö veiðisvæði og má flokka það veiðisvæði eitt besta vorveiðisvæði Bretlandseyjana. Það verður mjög spennandi að fylgjast með hvernig fyrstu dagarnir verða. Lower Crathes/West durris er aðeins 4 stanga veiðisvæði og er veitt á báðum bökkum. veiðisvæðið er að gefa að öllu jafnaði 400 laxa og er besti tíminn frá enda febrúar fram til Júní.
þeir sem eru áhugasamir um að skreppa má benda á að það tekur aðeins 1 klst og 40 mín að fljúga frá keflavík-Glaskow svo þetta er ekki langt ferðalag fyir það eitt að lengja veiðisumarið.
frekari upplýsingar gefur stefan@lax-a.is
