Helstu fréttir
Veiðileyfi í Laxá í Aðaldal komin í sölu á www.agn.is
Laxá í Aðaldal er einstök paradís fyrir fjölskylduna með stórbrotið útsýni yfir Kinnafjöll með einni laxastöng og einni silungastöng.
Árbót er frábært fjölskylduveiðisvæði með bæði lax og silung ásamt stór glæsilegu veiðihúsi.
Gott aðgengi er að ánni, góð urriðaveiði snemmsumars og stórlaxavon seinnipart sumars. Fallegt og rúmgott veiðihús með aðstöðu fyrir 6 manns í þremur tveggja manna herbergjum. Fjölskylduvænt og skemmtilegt veiðisvæði.
Staðsetning: Norðurland um 80 km frá Akureyri eða um 10 mín. akstur frá Húsavík.
Veiðisvæði: 3 km að lengd og nær að neðanverðu frá svokallaðri Bæjarklöpp og að girðingarenda ofan við Höskuldarvik, á þessu svæði er laxastöngin. Að auki er ein silungastöng sem staðsett er frá túngirðingu ofan Birgisflúðar og upp að túngirðingu sem staðsett er um 200 metra neðan Bótarstrengs.
Sjá betur með því að smella hér.
