Helstu fréttir
Veiðileyfi í Straumana komin inn á www.agn.is
Nú geta þeir sem vilja tryggja sér veiðileyfi í Straumana fyrir næsta veiðisumar keypt sér veiðileyfin hér beint af vefnum.
Ekki komust allir að sem vildu síðasta veiðisumar enda eru Straumarnir ávallt uppseldir snemma hjá okkur og eru þetta síðustu dagarnir sem eftir eru í Straumana.
Straumarnir eru í Borgarfirði eða um 85 km frá Reykjavík og er veiðistaðurinn ármót Norðurár og Hvítár.
Veiðihúsið í Straumunum er afar aðlaðandi, steinsnar frá veiðistað. Þetta er annað elsta veiðihús landsins, byggt af enskum veiðimönnum um 1930. Í húsinu eru 2 tveggja manna herbergi, stofa, eldhús og baðherbergi. Eingöngu er boðið upp á svefnpokagistingu. Verönd með grilli. Aðgerðaaðstaða í sérhúsi.
Smellið hér til þess að lesa ykkur betur til um Straumana þar sem hægt er að kaupa veiðileyfi beint af vefnum.
