Helstu fréttir
Nýja árið að renna í garð
Þá styttist endrum í nýja árið, 2007 og íslenska þjóðin bíður spennt eftir áramótunum. Margt er í boði og endalausir möguleikar á skemmtun. Flestir borða þó með fjölskyldunni góðan mat og fara svo út á lífið, það er áætlunin þetta árið á þessum bæ allavega.
Flugeldasölur hafa opnað og við skundum strax á þær. Ég er nú frekar hrædd við þessi læti og sætti mig vel við að halda á blysinu í annarri og stjörnuljósinu í hinni og láta aðra um að sprengja.
Lax-á vill óska landsmönnum gleðilegs nýs árs og þökkum viðskiptin á liðnu ári. Megi nýja árið færa ykkur mikla gleði og veiðigæfu.
Fyrir hönd Lax-á,
Valgerður Erla
