Helstu fréttir

bear

Sunray Shadow – Collie Dog.

24.12.2006

Sunray Shadow – Collie Dog.

Það eru allir vasar fullir af Sunray Shadow þegar ég fer til veiða, þetta er sú fluga / túba sem hefur gefið mér svo lagmest í gegnum minn veiðiferil, bæði hér heima á Íslandi og erlendis, þá sérstaklega í Skotlandi og Rússlandi. Það þarf að vinna með SS á mjög markvissan og sérstakan hátt. Vinnirðu rétt með túbuna þá bætirðu afla þinn verulega, ef ekki er unnið rétt með túbuna gefur hún nánast ekkert.  SS virkar best í litlu vatni þegar mikið er af laxi sem ekki tekur flugu, einnig í miðlungsháu vatni og í miklu vatni ef að hitastigið er gott, 8 gráður eða meira. Gott er að finna lax með SS, oftar en ekki kemur laxinn fyrst og skvettir sér á túbuna með ofsa látum en tekur hana ekki í fyrsta kasti, þá getur verið gott að skipta strax um og setja litla flugu undir og láta han reka þar sem laxinn kom upp á SS, oftar en ekki tekur laxinn strax litlu fluguna, nú ef ekki þá, skaltu strax setja SS aftur á og þá vinna hana á annan hátt yfir fiskinn, strippa hana hraðar eða hægar, meira þversum, upp á móti straumi..... á endanum er þetta allt of mikið áreiti fyrir laxinn og hann tekur með ofsafengnum hætti.  Oft kemur hann allur upp úr, þurrkar sig og tekur túbuna á leiðinni niður, þá er mikill hjartsláttur og óvanir veiðimenn kippa þá gjarnan túbunni snarlega frá laxinum, en þetta lærist.

Hvernig á að nota SS:

Lítið vatn mikið af laxi sem ekki tekur:

Kastaðu SS með flotlínu alveg þvert á strauminn / hylinn, bíddu í nokkar sekúndur þangað til að það er komin u laga bugt niður straum, þegar bugtin er orðin nokkuð mikil þá byrjarðu að strippa túbuna inn, þú byrjar hægt, eykur hraðann eftir því sem bugtin minnkar og þú verður að strippa inn túbuna alveg til þín nánast alveg að stangartoppi. Oft kemur sami laxinn í mörgum loftköstum á eftir túbunni í sama kastinu. Þú þarft að fara hratt yfir hylinn með SS, aldrei að endurtaka sama kast á sama stað nema að þú hafir fengið einhver viðbrögð.  Sérlega góð skilyrði fyrir SS er lítið vatn, mikið af laxi sem ekki tekur,  hávaði, rok og rökkur.  Þegar fer að kvölda er líka heitur tími fyrir SS. Áríðandi er að hafa margar stærðir og gerðir af SS, ef laxinn er mjög tregur, leginn og latur þá þarf að ögra honum með stórri útgáfu af SS, allt að 15 cm að lengd.  Eftir því sem túban er háralengri þarf að strippa hana hraðar.  Ef vatnið er mjög lítið þá er oft áhrifaríkt að kast SS vel upp á móti straumi.

 

Hvífriss og harðir strengir gefa oft illa á flugu, þetta er drauma svæði fyrir SS, þú getur togað upp lax á þessa ótrúlegu túbu úr nánast hvað frissholu sem er, eftir því sem straumrinn er meiri því minna strippar þú, ef að þú ert að veiða í ólgandi hvítfrissi og straumólgum þá stripparðu ekkert, lætur bara SS dangla ofaná frissinu.

 

Stundum er gott að hitcha SS, ef ekki virkar að að strippa túpuna yfir lata laxa, þá er oft gott að hitcha túbuna.  Þræða girnið í gegnum hliðina á plastbúknum, síðan strippa hana yfir laxinn og nú skal hún skauta vel þannig að það kemur falleg ákveðinn V straumröst á eftir túbunni, þetta fær enginn lax staðist.

 

Vorveiði með SS.

Fáir laxar mikið vatn ... en ekki svo kalt, besta flugan er aftur SS.  SS finnur fyrir þig laxinn, farðu hratt yfir, 1 skref fyrir hvert kast, ef lax er á svæðinu þá kemur hann á eftir túbunni, muna því meira vatn ... hægara stripp.

 

Hvernig á að strippa:

Langt, mjúkt en samt hratt, þetta er ein löng hreyfing, þú þarft að strippa heilan meter í senn, þú byrjar með hægri hendi alla leið upp að fyrstu lykkju á flugustönginni, dregur til þín i einni langri hreyfingu þar sem þú endar með hendina niður fyrir læri, síðan strax upp að lykkju aftur og niður fyrir læri og svo aftur og aftur þangað til að komið er að nýju kasti.

 

Mér hefur reynst best að hafa SS með engum auka litum, bara svarta geit og ekkert meir, kannski 2 strimla af glimmeri.  Margar útgáfur af SS eru allt of mikið klæddar, í ýmsum útgáfum með hvítu í, með peacock, fullt af glimmeri, ég kroppa þetta allt af og skil bara eftir svörtu geitina og tvö strá af glimmeri.

 

Smá veiðisaga í lokin:

Fáir vita um yfirburði SS.  Ég veiddi Tweed (Skotlandi) í október ásamt félaga mínum fyrir 2 árum, veiðisvæðið er kallað Lennel. Aldrei höfðum við veitt þetta svæði áður.  Þegar við komum og hittum Rocky, leiðsögumanninn okkar á fyrsta veiðidegi tjáði hann okkur að það væri mikið af laxi á öllu svæðinu, lítið vatn ... oohhh , Rocky sagði að eini möguleikinn að fá lax væri að veiða með agnarsmáum flugum og láta reka hægt. Við byrjum á stað sem heitir Crow, ... þar var lax að lyfta sér um allt, ég dreg upp SS og sýni Rocky og spyr hvort við eigum ekki að prufa þessa flugu núna ... svarið var .. “if you put this beast one I am off home, you will be blank for a week!” .. Ég krafðist að fá að prufa ... og að sjá svipinn á Rocky þegar við tókum 8 laxa í beit í fyrsta hylnum og lax á eftir flugunni í hverju kasti, við fengum á 4 dögum 64 laxa á 2 stangir og var það metveiði frá upphafi á þessu svæði.  Nú þarf ég að senda Rocky 10 kg af SS á hverju hausti!!!!

 

Árni Baldursson.

 

 



Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

RISE

7.2.2012 : RISE Kvikmyndahátíð haldin í annað sinn

RISE fluguveiði kvikmyndahátíð verður haldin í annað sinn 10. mars næstkomandi í Bío Paradís (Hverfisgötu 54) en hátíðin var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í febrúar á síðasta ári. Hátíðinni var gríðarlega vel tekið og var uppselt á sýninguna í fyrra. Sýningin hefst kl. 20:00 en húsið opna kl. 19:00.

Lesa meira
 
VididalsaRognv2

26.1.2012 : Glæsilegar myndir úr Víðidalsá

Rögnvaldur Guðmundsson stórveiðimaður sendi okkur þessar skemmtilegu veiðimyndir frá því í ágúst síðasta sumar. Hér sést og staðfestist að Víðidalsá er ein af stórlaxa ám Íslands. Þrátt fyrir að Víðidalsá hafi ekki náð sér á strik eins og svo marga aðrar á landinu skilaðu hún allnokkrum stórlöxum á land en hún endaði í 747 löxum.

Lesa meira
 
p7

12.1.2012 : Ungfugl tveir þriðju af veiðinni

Náttúrufræðistofnun hefur aldursgreint tæpar tvöþúsund rjúpur sem veiddar voru á síðasta tímabili. Flestar þeirra komu á Norðausturlandi, 682 talsins, svo Norðvesturlandi 417 en minnst af Suðurlandi 91. Alls veiddust 1295 ungfuglar en 651 fullorðnir.

Lesa meira
 
kertasnikir[1]

28.12.2011 : Vinningshafar í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á

Búið er að draga úr seldum gjafabréfum í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á en þrír stórir vinningar voru í boði ásamt fimm ársáskriftum að Sportveiðiblaðinu. Góð sala var á gjafabréfum fyrir Jól og voru því mörg nöfn í pottinum. Búið er að hafa samband við vinningshafa og þökkum við öllum fyrir þáttökuna og óskum vinningshöfum innilega til hamingju.

Lesa meira
 
p15

19.12.2011 : Að hamfletta rjúpur

Nú styttist í Jólin og margir eflaust búnir að skjóta sér rjúpur jólamatinn. Það eru ekki allir svo heppnir að eiga góða að til að kenna þeim handtökin við að hamfletta rjúpurnar. Til að stytta mönnum tímann við að leita að leiðbeiningum ákváðum við að safna saman nokkrum tenglum þar sem þessi handtök eru kennd.

Lesa meira
 
pottaskefill[1]

15.12.2011 : Jólastemning hjá Lax-á

Jóla-Gjafabréfaleikur Lax-á er í fullum gangi og gjafabréfin rjúka út eins og heitar lummur þessa daganna. Mögulegt er að kaupa gjafabréf frá 5000 til 500.000 og fylgja góðar gjafir með gjafabréfunum ásamt því að þú átt möguleika á að vinna veglega vinninga.

Lesa meira
 
AtlanticSalmonFront

1.12.2011 : Atlantic Salmon Magic

Bókin Atlantic Salmon Magic tekur á spurningum sem hafa nagað laxveiðimenn um langan tíma. Bókin, sem hefur fengið frábæra dóma, gefur góða innsýn inní hegðun laxins en höfundur reynir að svara spurningum eins og afhverju tekur laxinn fluguna? og hvað sér laxinn? Nú er hægt að nálgast hana á vefnum í gegnum vefverslun FishandFly.com en DVD diskur fylgir með hverri bók. Hluti af hverju seldu eintaki rennur hluti til NASF (North Antlatic Salmon Fund).

Lesa meira
 
RIMG0002

7.11.2011 : Laxasetur Íslands opnar á Blönduósi

Laxasetur Íslands, sýningar- og fræðasetur um íslenska laxinn verður opnað á Blönduósi í sumar. Undirbúningur fyrir opnunina er nú í fullum gangi.

Í Laxasetri Íslands verður hægt að finna ýmislegt efni er tengist íslenskum laxfiskum. Þar verða til að mynda upplýsingar um laxveiðiár, sögu laxveiða og rannsóknir.

Lesa meira
 

1.11.2011 : Fyrirlestur um stíflur í ám og áhrif þeirra á fiskistofna

Fyrirlestur um stíflur í ám og tilraunir til að greiða för sjógöngufiska á áhrifasvæðum stíflumannvirkja verður haldinn í Háskólabíói, Sal 2, kl. 11:50 – 13.20, fimmtudaginn 3. nóvember 2011.

Fyrirlesturinn er haldinn á vegum Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands, Stofnunar Sæmundar fróða og NASF, Verndarsjóðs villtra laxastofna.

Lesa meira
 
minkurinn

19.10.2011 : Pólverjar sækja í smiðju Íslendinga varðandi þekkingu á mink

Nýverið sótti pólskur minka sérfræðingur Náttúrustofuna heim í þeim tilgangi að afla gagna um rannsóknir, löggjöf, veiðistjórnun, veiðar og ræktun minka á Íslandi. Um var að ræða líffræðinginn Jakub Skorupski, sem starfar við Tækniháskóla Vestur-Pommern í Szczecin í Póllandi og er jafnframt verkefnastjóri hjá samtökunum Baltic Green Belt.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarfi 16 - 203 Kópavogur | s: 531 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar