Helstu fréttir
2 DAGAR Í JÓLIN !
Íslendingar eru þekktir fyrir jólastressið og gera allt á síðustu stundu, ekki get ég sagt að ég sé einhverju betri þar sem ég kaupi gjafirnar á eftir. En nú eru verslanir yfir fullar af hlaupandi fólki út um allt að stressa sig á að jólin séu að koma of fljótt. Ég vil bara minna íslendina á að anda aðeins rólega, jólin koma hvort sem við erum tilbúin eður ei.
En nú loksins er allt orðið jólalegt og komin sería á skrifstofunni.
Svo eigum við nú von á Ketkróki á morgun en ég setti fisk út fyrir hann sem hann getur krækt í.
Gleðileg jól og farsælt komandi ár. Megi nýja árið færa mikla gæfu og við þökkum fyrir gömlu góðu.
Valgerður Erla Árnadóttir - jólabarn
