Helstu fréttir
Vænar bleikjur í Brunná
Hópur vaskra veiðimanna frá Akureyri var við veiðar í Brunná í Öxarfirði
fyrr í mánuðinum og voru þeir í sjöunda himni, enda veiðin góð og fiskarnir
pattaralegir. Valdemar Friðgeirsson var einn veiðimannanna og hann sagði
bleikjurnar sem hópurinn veiddi sérlega skemmtilegar. „Við fengum mikið af
þriggja og fjögurra punda bleikjum sem voru vel yfir 50 sentímetrar að
lengd. Við náðum einnig nokkuð af urriða og hann var bæði stór og sterkur."
Valdemar segir að veðrið hafi verið of gott þessa daga sem þeir voru í
Öxarfirðinum. „Það var mikil sól, en það er sérstaklega slæmt, því áin er
lítil og viðkvæm. Það sem bjargaði okkur var að nokkur vindur gáraði ána og
ég held að það hafi bjargað öllu."
Þeir féalgarnir veiddu mest á púpur sem kastað var andstreymis. „Við vorum
með hefðbundna kúluhausa, svo sem Krókinn, Beyki og svartar
vinilribbpúpur." Stangaveiðiféalg Akureyrar annast sölu veiðileyfa í
Brunná. Nánari upplýsignar eru á vef félagsins www.svak.is
kv. agust@lax-a.is
