Helstu fréttir
Laxinn mættur í Tungufljótið
Nú eru laxar byrjaður að stökkva í Tungufljóti og verður gaman að sjá hjvernig gengur með nýja laxveiðisvæðið þar upp frá.
Við eigum von á að það veiðist um 3 – 4 hundruð laxar þar í sumar miðað við að sleppt var í það 34 þúsund seiðum í fyrra.
Sleppingar heppnuðust vel í alla staði. Öllum hrygnum verður sleppt aftur í sumar í Tungufljóti í klakkistur til hrognatöku fyrir næsta veiðisumar.
Byrjað verður að veiða í Tungufljóti þann 1. ágúst í sumar.
Kv. Ágúst - agust@lax-a.is
