Helstu fréttir
Fjörugur morgun í Blöndu
Það var mikið að gera hjá veiðimönnum í Blöndu í morgun, alls veiddust 10 laxar þar og allir á bilinu 10 - 15 pund. Þykir þetta algjör stjörnumorgun þar sem að þetta kom á aðeins 4 stangir. Nú er bara veitt á svæði eitt en svæði 2 opnar 20 júní og eru enþá örfáir dagar lausir í júní. Tilvalið að skella sér í veiði og vera yfir nótt í nýja glæsilega veiðihúsinu við Blöndu.
Frekari upplýsingar eru að fá hjá steinar@lax-a.is eða á skrifstofu lax-á í síma 5576100
