Helstu fréttir
Ævintýri í Þorleifslæk
Við vorum að heyra í Helga Guðbrandsyni sem var að veiða í Varmá í gær og má segja að Helgi hafi lent í ævintýrum. Morgunun var svona þokkalegur ískalt og frosið í lykkjunum á milli kasta og náðu þeir félagar að reita um eina 5 sjóbirtinga á bilinu 2-4 pund um morguninn, um hádegið byrjaði að snjóa og þá fóru hlutirnir að gerast þeir félagar fengu tvo 2-3 punda, tvo 4 punda einn 6 punda, einn 8 punda og tvo fiska sem, voru yfir 10 pund. Helgi sagði að það hafi verið veðurbreytingarnar sem höfðu komið öllu af stað og einnig að þegar fór að snjóa hlýnaði aðeins, Flugan sem var að gefa þeim félögum var svartur Wollybugger no 8. Helstu staðirnir sem voru að gefa þeim félögum voru stöðvarhyljirnir tveir og síðan hyljirnir fyrir neðan stíflu.
Það er alltaf hægt að fá veiðileyfi í Varmá og Þorleifslæk á www.agn.is skoðið lausa daga.
bestu kv Stefán
