Helstu fréttir
Rússneskur saltaður lax
Rússneskur saltaður lax
Rússneskur saltaður lax er eins og graflax (sama aðferðin)
Tvö flök af laxi sem eru söltuð hæfilega – það er hægt að hafa blönduna með 1/10 af sykri. Flakið á ekki að vera með þykku lagi af salti, heldur með mjög þunnu lagi en passa samt að fiskurinn sé allur þakinn, annars verður hann þurr.
Flökunum pakkað inn og sett í ískáp í 2 daga og þeim snúið daglega.
Borið fram í þunnum sneiðum með ristuðu brauði, sítrónu og vodka (reyndar er það ekki skilyrði)
Auðvitað er þetta borið fram með sömu dressingu grafinn lax.
Þessi uppskrift kemur líka frá Steffen Juhl
Og svo aftur graflaxsósan frá Holtinu.
1 dós sýrður rjómi
2-3 msk majónes
1 msk púðursykur
2 msk sætt sinnep
4 msk dill
Pipar og salt
Öllu blandað saman og borið fram með fiskinum
Verði ykkur að góðu
Marta Sigurjónsdóttir
Myndin er fengin af heimasíðu Val-lax ehf
