Helstu fréttir
Sænskur graflax með sinneps dressingu
2 fiskiflök um 300 gr hvort (án skins)
1 bolli af púðursykri (það má líka nota hunang eða hvítan sykur)
1 boli af salti
5 gr ferst saxað dill (það má líka nota þurrkað)
pipar
Bragðauki er ½ cl af koníak eða viskí (má sleppa)
Blandið sykrinum, saltinu og helmingnum af dillinu saman, leggið annað flakið af laxinum á disk, kryddið með pipar og hyljið flakið með blöndunni. Kryddið hitt flakið og leggið það ofan á fyrra flakið. Pakkið inn og athugið að þrýsta flökunum vel saman.
Geymið í frysti í 2 til 2 ½ sólarhring snúið honum af og til.
Takið kryddið af (ekki skola flökin), kryddið með restina af dillinu og pakkið inn aftur. Þetta er svo skorið eins og reyktur lax og borið fram með salati, hunangs dressingu og sítrónum.
Einnig ætla ég að láta fylgja með graflaxsósu sem er gömul uppskrift frá Holtinu.
1 dós sýrður rjómi
2-3 msk majónes
1 msk púðursykur
2 msk sætt sinnep
4 msk dill
Pipar og salt
Öllu blandað saman og borið fram með fiskinum
Verði ykkur að góðu
Marta Sigurjónsdóttir
Myndin er fengin af heimasíðu Val-lax ehf
