Helstu fréttir
Nokkrar stangir eftir í Rússlandi.
Birgir Georgsson viktar einn nýgenginn úr Pump pool.
Innif. Ferðir Murmansk - Kola Camp - Murmansk , heill leiðsögumaður með bát með hverri stöng , sér rúmgott herbergi með baðherbergi , allar máltíðir. Smellið á lesa meira til að fá allar frekari uppl. Einnig greinagóðar uppl. á:
/russia/kola-and-kitza-rivers/ og:
/russia/fishing/kola-and-kitza-rivers/generalinfo/
Arni - arnibald@lax-a.is
Nýja gufubaðið í Kola Camp.
KOLA RIVER: ÞAR BÚA STÓRLAXAR
Kola er stærsta áin á norðanverðum Kólaskaga og kemur ekki á óvart að skaginn skuli nefndur eftir þessu tæra glæsilega fljóti. Veiðihúsið eru um 250 mílur norðan við heimskautsbaug rétt fyrir neðan ármót Kola og þverárinnar Kitsu, sem einnig er frábær laxveiðiá.
Leiðsögumaðurinn Alexey með 31 punda hrygnu úr Semitary pool.
Kola og Kitsa eru þekktar fyrir stórar göngur, stóra fiska og einstaklega hressa laxa á færi. Vertíðin hefst í júníbyrjun og allan júni eru menn í stórlaxadrætti í miklu og köldu vorvatni. Um er að ræða 15 til 30 punda laxa á tvíhendur með sökkendum og þyngdum flugum og túpum.
30 pundari úr Semitary pool.
Einstaka lax nær 40 pundum og geta menn vænst þess að glíma við 3 til 5 tröll af þessum toga á einum degi og má reikna með því að menn gangi bærilega lerkaðir til hvílu eftir þau átök. Á það skal þó bent að hafi menn ekki fengið nóg, er ekkert sem mælir því gegn, að menn valsi út í nóttina eftir kvöldmat og haldi fjörinu áfram.
Birgir Georgsson með 26 pundara úr Semitary pool.
Þegar líður fram yfir miðjan júní er vatnshæð farina ð lækka og árvatnið að hlýna. Menn geta þá, þeir sem svo kjósa, snúið sér að einhendum og flotlínum, hitsi og jafnvel þurrflugum. Uppúr þessu fer smálaxinn að ganga og færist þá heldur betur líf í tuskurnar því þeir eru miklu mun fleiri heldur en þeir stóru, menn eru að setja í og landa miklum fjölda laxa og þeir stóru eru alltaf að slæðast með þó að uppistaðan í veiðinni héðan af sé smálaxinn spræki. Smálaxagengdin stendur yfirleitt júlímánuð á enda.
24 pundari úr Junction pool.
Að því er gjarnan spurt hvernig græjur passi best hér nyrðra. Það er mælt með tvíhendum, sérstaklega snemma vertíðar þegar meira vatn er í ánni og menn veiða með þyngri búnaði.
26 punda nýgengin hrygna úr Monicu, fallegasta flugustað í heimi!
Mest af Kola-laxinum hrygnir í Kitsu. Kitsa er af öðrum toga heldur en Kola, vatnsminni og nettari í alla staði.
Setu stofan í Kola Camp.
Aðbúnaður í veiðihúsunum er í alla staði til fyrirmyndar. Sofið er í tveggja manna bjálkakofum með sérbaðherbergi (Hver veiðimaður fær privat hús fyrir sig).
Rúmgóð hlý og notaleg herbergi.
Matsalur og setustofa eru í sérhúsi sem er umlukið skemmtilegri verönd sem er með innbyggðum bar.
Veröndin með útsýni yfir home pool sem er einn besti veiðistaðurinn í Kola.
Er sérstaklega vinsælt að slaka þar á með heimahyljina fyrir augum, teygja úr sér og horfa á laxinn skvetta sér. Nú er nýbúið að byggja sauna hús , það er 60 fm að stærð með verönd með útsýni yfir Homepool.
Á góðri stund , Thomas , Árni , Birgir , James og Sukai.
ÞAÐ SEM ER INNIFALIÐ Í VERÐI ER:
Akstur frá flugvellinum í Murmansk og til veiðihúsa Kola River.
-
Gisting í veiðihúsi með sér baðherbergi og sturtu.
-
Allar máltíðir. Gott úrval áfengra drykkja er til staðar í veiðihúsi gegn aukagjaldi.
-
Minnst 6 daga veiði, auk nokkurra klukkustunda á komu- og brottfarardegi. Veiðileyfi og einn leiðsögumaður fylgir hverri stöng , einnig privat Bátur.
James York með hrygnu úr Bear pool.
ÞAÐ SEM EKKI ER INNIFALIÐ:
-
Ferðatryggingar.
-
Visa til Rússlands. Kostar 130 Evrur. Við þurfum vegabréf ið sent með DHL innan tveggja mánaða frá brottför. Það tekur viku að græja málið á Íslandi.
-
Áfengir drykkir og þjórfé leiðsögumanna og starfsfólks veiðiskála.
-
Millilandaflug.
-
Hótelkostnaður vegna gistingar í Helsinki ( eða Moskvu eða St. Petersburg ) á leið til Murmansk.
Veiðihúsið okkar í Júní kvöld sólinni.
VEIÐITÍMI:
Morgunverður er klukkan 7.30 og síðan er veitt frá klukkan 8.30 til 19 að kveldi. Þá er haldið í hús og snæddur kvöldverður sem er fram reiddur um það bil klukkan 20 til 20.30. Um miðjan dag er miðdegisverður snæddur á árbakkanum og útbúa leiðsögumenn samlokur og heita súpu. Kjósi menn að borða hádegisverðinn í veiðihúsinu þá er það einnig í lagi.
Matsalurinn í Kola Camp, þar er oft glatt á hjalla!
Enginn segir að þu megir ekki hlaupa til að renna fyrir laxana í heimahyljunum að kvöldverði afstöðnum, en sannast sagna eru menn yfirleitt orðnir hálf ruglaðir af laxadrætti er hér er komið sögu og láta sér nægja að fá sér í glas og horfa á laxana skvetta sér.
Lax úr Junction pool.
AÐRAR UPPLÝSINGAR:
Greiðslum er þannig komið fyrir að helmingur uppsetts verðs er greiddur er veðileyfin eru bókuð, afgangurinn gerður upp í síðasta lagi þremur mánuðum áður en að veiðiferð kemur.
33 punda nýgengin hrygna úr Cattle Pool , rétt ofan við Kola Camp.
