Helstu fréttir
Veiðikortið vinsælt á agn.is
Þingvallavatn á nýja Veiðikortin
Veiðikortið mæltist afar vel fyrir meðal veiðimanna þegar það kom á markað í fyrravor og þótti hin mesta kjarabót, en handhafar kortsins gátu veitt í 20 vötnum víða um land. Veiðikortið 2006 er nú komið á markað og hafa þrjú vatnasvæði bæst við. Þykir mesta fréttin sú að veiðar fyrir landi þjóðgarðsins á Þingvöllum eru komnar á kortið.
Veiðikortinu fylgir veglegur bæklingur þar sem vötnin eru ítarlega kynnt til að auðvelda aðgengið, sem og kynna korthöfum þær reglur sem gilda við hvert vatnasvæði. Einnig eru kort og myndir frá vatnasvæðunum.
"Alveg frá fyrsta degi var Veiðikortinu mjög vel tekið," segir Ingimundur Bergsson. "Og viðbrögðin voru góð frá öllum aldurshópum; jafnt fjölskyldur, ellilífeyrisþegar og harðir einstakir veiðimenn notfærðu sér þessa möguleika. Þetta hentar öllum sem vilja komast út úr borginni og viðra sig."
Veiðikortið 2006 er selt í verslun á vefnum www.agn.is og á bensínstöðvum ESSÓ og hjá veiðifélögum, auk þess sem hægt er að panta kortið á vefnum veidikortid.is.
"Við heyrum að veiðimenn eru mjög ánægðir með að fá þjóðgarðinn á Þingvöllum inn, enda er það að margra mati veiðisvæði veiðisvæðanna."
Þess má geta að í sumar sem leið kostaði sumarkort á Þingvöllum kr. 10.000 og stakt veiðileyfi kr. 1.000. "Þetta gerir vatnið miklu aðgengilegra," segir Ingimundur.
Hann segir að ef viðtökur verði áfram jafngóðar sé markmiðið að bæta enn fleiri veiðisvæðum við.
kv. Ágúst - agust@lax-a.is
