Helstu fréttir
Veiðileyfi í Straumana komin inn á agn.is
Nú geta áhugasamir keypt sér veiðileyfi í Straumana beint á vefnum www.agn.is
Straumarnir eru alltaf uppseldir og hafa færri komist þar að en vilja og er því tækifæri fyrir þá sem vilja tryggja sér daga þar næsta sumar að hafa hraðan á og kaupa þá beint af netinu.
Straumarnir eru skemmtilegur og gjöfull fluguveiðistaður í kyrrlátu umhverfi.
Straumarnir hafa verið frábærir síðustu sumur, þeir eru ávalt sterkastir þegar lítið vatn er í Norðurá því þá kýs laxinn að stoppa þar lengur en ella. Sumarið 2005 var svæðið sérstaklega sterkt frá miðjum júní og út júlí, en í fyrra var laxinn þar meira eða minna allt sumarið.
Það er aldrei fyrirséð hvernig þessi mál æxlast og fer alfarið eftir árferði. En hvort sem laxinn stoppar eða brunar í gegn, þá er staðurinn alltaf jafn heillandi og ekki spillir hvernig haldið er í gamla tímann með notkun á gamla veiðihúsinu.
Oftast er kominn mikill sjóbirtingur á þetta svæði í bland við laxinn uppúr miðjum júlí og ef laxinn er ekki að gefa sig í ágúst geta menn yfirleitt gengið að birtingi vísum.
Staðsetning:Borgarfjörður 85 km frá Reykjavík.
Veiðisvæði: Ármót Norðurár og Hvítár.
Stangarfjöldi: 2 stangir, seljast saman.
Tímabil: 1. júní – 31. ágúst.
Daglegur veiðitími:
7–13 og 16–22 (1. jún.–20. ág.)
7–13 og 15–21 (21. ág.–31. ág.).
Meðalvigt: 5,7 pund.
Leyfilegt agn: Fluga, maðkur og spónn.
Veiðitæki: Einhenda 9–10”, flotlína 7-9.
Bestu flugur: Black and Blue, Blue Doctor, Francis og Snælda.
Staðhættir og aðgengi: Mjög gott.
Veiðihús: Afar aðlaðandi, steinsnar frá veiðistað. Þetta er annað elsta veiðihús landsins, byggt af enskum veiðimönnum um 1930. Í húsinu eru 2 tveggja manna herbergi, stofa, eldhús og baðherbergi. Eingöngu er boðið upp á svefnpokagistingu. Verönd með grilli. Aðgerðaaðstaða í sérhúsi. Þess ber að geta að enginn ísskápur er í veiðihúsinu.
Umgengnisreglur: Veiðimenn mega koma í hús 1 klst. fyrir veiðitíma en brottfarardag skulu þeir rýma hús 1 klst. eftir að veiðitíma lýkur. Munið ávallt að ræsta hús og hirða rusl.
Skyldugisting: Veiðihús innifalið í verði.
Smellið hér til þess að lesa betur til um Straumana þar sem þið getið séð lausa daga og verð og jafnvel tryggt ykkur veiðileyfið beint á vefnum.
Kv. Ágúst - agust@lax-a.is
