Helstu fréttir
Veiðileyfi í Laxá í Aðaldal nánar tiltekið á Árbótarsvæðið eru komin inn á agn.is
Á Árbótarsvæðinu í Laxá í Aðaldal er sérlega rúmgott og glæsilegt veiðihús sem hentar fullkomlega fyrir fjölskyldur eða litla vinahópa. Nú ætlar Lax-á að bæta enn við þjónustuna við húsið og setja þar niður heitan pott þ.s. fólk getur slappað af eftir skemmtilegan veiðidag og börnin að sjálfsögðu eftir góðan dag eftir berjatínslu. Árbót hefur allt sem prýðir góða fjölskylduveiði; gott aðgengi, góða urriðaveiði og þá stóra snemmsumars og stórlaxavon á haustin.
Smellið hér til þess að lesa ykkur betur til um Árbót og skoðið myndir
Smellið hér til þess að kaupa veiðileyfi og sjá lausa daga og verð.
Kv. Ágúst - agust@lax-a.is
