Helstu fréttir

WR Thordur 7

Ytri Rangá orðin að 6 mismunandi veiðisvæðum.

14.12.2005

Nú er Ytri Rangá orðin af 6 mismunandi veiðisvæðum og má þar helst nefna þau svæði sem eru staðsett fyrir ofan Árbæjarfoss.

Aðal laxveiðisvæðið er nú frá svokölluðum Djúpós sem er neðsti veiðistaður á laxasvæðinu og nær það svæði upp að Árbæjarfossi þetta er svæði sem flestir þekkja og er þetta veiðisvæðið sem skyldugisting fylgir með. Nema í byrjun og lok veiðitímabils.

Sjá ný veiðikort hér:

Ytri Rangá svæði 1 - 4  kort

Ytri Rangá svæði 5 - 7  kort

Ytri Rangá Heiði / Bjallalækur kort

Ytri Rangá Guttlfoss kort

Ytri Rangá Réttarnes kort

Ytri Rangá urriðasvæði kort

Hólsá kort


Fyrir ofan Árbæjarfossinn er Guttlfossinn sem er orðið nýtt 2 stanga veiðisvæði ..

Laxveiðisvæðið Guttlfoss í Ytri Rangá er tveggja stanga svæði með 2 sleppitjörnum og að sjálfsögðu hinum gjöfula og fallega veiðistað Guttlfossbreiðu. Þetta veiðisvæði er beint fyrir ofan Árbæjarfossin og nær upp fyrir Geldingarlækjarós.

 

Allt agn er leyfilegt á svæðinu og fyrir þá sem nota flugur að þá mælum við með túpum og hraðsökkvandi taumi þar sem Ytri Rangá er fræg fyrir að vera köld og laxinn liggur djúpt.

 

Veiðileyfin verða seld frá morgni til kvölds. Og kostar stöngin 15.800.- pr. dag.

 

Nóg er um gistingu á svæðinu og mælum við með Ægissíðu á Hellu t.a.m.

 

Nú er búið að gera aðgengilegt og fallegt veiðikort af veiðistöðunum þar sem allir veiðistaðir eru vel merktir sem má nálgast á www.agn.is

 

Laxastiginn við Árbæjarfossinn verður opnaður þann 25. júlí og hefst veiðin á Guttlfosssvæðinu þann 1. ágúst og verður veitt til 10. október.

 

 

Næsta veiðisvæði þar fyrir ofan kallast Heiði og Bjallalækur og er það sex stanga svæði með 3 sleppitjörnum og nær frá Grjótneshyl og upp fyrir Höfðalæk.

 

Allt agn er leyfilegt á svæðinu og fyrir þá sem nota flugur að þá mælum við með túpum og hraðsökkvandi taumi þar sem Ytri Rangá er fræg fyrir að vera köld og laxinn liggur djúpt.

 

Lax-á ehf hefur ákveðið að selja á þetta svæði ódýrt og kostar stöngin 7.800.- pr. dag. Veiðileyfin verða seld frá morgni til kvölds.

 

Nóg er um gistingu á svæðinu og mælum við með Hrólfsstaðahelli og Galtalæk t.a.m.

 

Nú er búið að gera aðgengilegt og fallegt veiðikort af veiðistöðunum þar sem allir veiðistaðir eru vel merktir sem má nálgast á www.agn.is.

 

Laxastiginn við Árbæjarfossinn verður opnaður þann 25. júlí og hefst veiðin á Réttarnesi þann 1. ágúst og verður veitt til 10. október.

 

 

Svo fyrir ofan Heiði og Bjallalæk tekur við veiðisvæði sem kallast Réttarnes.

Laxveiðisvæðið Réttarnes í Ytri Rangá er sex stanga svæði með 3 sleppitjörnum og er það efsta laxasvæðið í ánni og nær frá Bolholti og upp að Árgilsgljúfri.

 

Allt agn er leyfilegt á svæðinu og fyrir þá sem nota flugur að þá mælum við með túpum og hraðsökkvandi taumi þar sem Ytri Rangá er fræg fyrir að vera köld og laxinn liggur djúpt.

 

Lax-á ehf hefur ákveðið að selja á þetta svæði ódýrt og kostar stöngin 5.800.- pr. dag. Veiðileyfin verða seld frá morgni til kvölds.

 

Nú er búið að gera aðgengilegt og fallegt veiðikort af veiðistöðunum þar sem allir veiðistaðir eru vel merktir.

 

Laxastiginn við Árbæjarfossinn verður opnaður þann 25. júlí og hefst veiðin á Réttarnesi þann 1. ágúst og verður veitt til 10. október.

 

 

Svo má ekki gleyma urriðasvæðinu í Ytri Rangá sem er efsta svæðið í Ytri Rangá og eru þar mikið um risa staðbundna urriða.

 

 

Svo er auðvitað vorveiði líka í Ytri Rangá sem er frá 1. apríl – 31 maí og er þá töluvert um sjóbirting í ánni.

Ytri Rangá er ein vinsælasta og glæsilegasta veiðiá landsins og er hún þekkt fyrir met sín í veiddum fiskum undanfarin ár. Núna er hins vegar hægt að komast í veiðisvæðið frá hinum glæsilega Ægissíðufossi og niður að Djúpósnefi þar sem 4 stangir eru leyfðar og er eingöngu fluguveiði á þessum tíma og einnig er ætlast til að öllum fiski sé sleppt aftur nema fiskurinn sé þeim mun meira laskaður. Á þessum tíma er eingöngu sjóbirtings, urriða og bleikjuveiði.

 

 

Kær kveðja Ágúst Karl Ágústsson – Lax-á ehf og www.agn.is



Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

RISE

7.2.2012 : RISE Kvikmyndahátíð haldin í annað sinn

RISE fluguveiði kvikmyndahátíð verður haldin í annað sinn 10. mars næstkomandi í Bío Paradís (Hverfisgötu 54) en hátíðin var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í febrúar á síðasta ári. Hátíðinni var gríðarlega vel tekið og var uppselt á sýninguna í fyrra. Sýningin hefst kl. 20:00 en húsið opna kl. 19:00.

Lesa meira
 
VididalsaRognv2

26.1.2012 : Glæsilegar myndir úr Víðidalsá

Rögnvaldur Guðmundsson stórveiðimaður sendi okkur þessar skemmtilegu veiðimyndir frá því í ágúst síðasta sumar. Hér sést og staðfestist að Víðidalsá er ein af stórlaxa ám Íslands. Þrátt fyrir að Víðidalsá hafi ekki náð sér á strik eins og svo marga aðrar á landinu skilaðu hún allnokkrum stórlöxum á land en hún endaði í 747 löxum.

Lesa meira
 
p7

12.1.2012 : Ungfugl tveir þriðju af veiðinni

Náttúrufræðistofnun hefur aldursgreint tæpar tvöþúsund rjúpur sem veiddar voru á síðasta tímabili. Flestar þeirra komu á Norðausturlandi, 682 talsins, svo Norðvesturlandi 417 en minnst af Suðurlandi 91. Alls veiddust 1295 ungfuglar en 651 fullorðnir.

Lesa meira
 
kertasnikir[1]

28.12.2011 : Vinningshafar í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á

Búið er að draga úr seldum gjafabréfum í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á en þrír stórir vinningar voru í boði ásamt fimm ársáskriftum að Sportveiðiblaðinu. Góð sala var á gjafabréfum fyrir Jól og voru því mörg nöfn í pottinum. Búið er að hafa samband við vinningshafa og þökkum við öllum fyrir þáttökuna og óskum vinningshöfum innilega til hamingju.

Lesa meira
 
p15

19.12.2011 : Að hamfletta rjúpur

Nú styttist í Jólin og margir eflaust búnir að skjóta sér rjúpur jólamatinn. Það eru ekki allir svo heppnir að eiga góða að til að kenna þeim handtökin við að hamfletta rjúpurnar. Til að stytta mönnum tímann við að leita að leiðbeiningum ákváðum við að safna saman nokkrum tenglum þar sem þessi handtök eru kennd.

Lesa meira
 
pottaskefill[1]

15.12.2011 : Jólastemning hjá Lax-á

Jóla-Gjafabréfaleikur Lax-á er í fullum gangi og gjafabréfin rjúka út eins og heitar lummur þessa daganna. Mögulegt er að kaupa gjafabréf frá 5000 til 500.000 og fylgja góðar gjafir með gjafabréfunum ásamt því að þú átt möguleika á að vinna veglega vinninga.

Lesa meira
 
AtlanticSalmonFront

1.12.2011 : Atlantic Salmon Magic

Bókin Atlantic Salmon Magic tekur á spurningum sem hafa nagað laxveiðimenn um langan tíma. Bókin, sem hefur fengið frábæra dóma, gefur góða innsýn inní hegðun laxins en höfundur reynir að svara spurningum eins og afhverju tekur laxinn fluguna? og hvað sér laxinn? Nú er hægt að nálgast hana á vefnum í gegnum vefverslun FishandFly.com en DVD diskur fylgir með hverri bók. Hluti af hverju seldu eintaki rennur hluti til NASF (North Antlatic Salmon Fund).

Lesa meira
 
RIMG0002

7.11.2011 : Laxasetur Íslands opnar á Blönduósi

Laxasetur Íslands, sýningar- og fræðasetur um íslenska laxinn verður opnað á Blönduósi í sumar. Undirbúningur fyrir opnunina er nú í fullum gangi.

Í Laxasetri Íslands verður hægt að finna ýmislegt efni er tengist íslenskum laxfiskum. Þar verða til að mynda upplýsingar um laxveiðiár, sögu laxveiða og rannsóknir.

Lesa meira
 

1.11.2011 : Fyrirlestur um stíflur í ám og áhrif þeirra á fiskistofna

Fyrirlestur um stíflur í ám og tilraunir til að greiða för sjógöngufiska á áhrifasvæðum stíflumannvirkja verður haldinn í Háskólabíói, Sal 2, kl. 11:50 – 13.20, fimmtudaginn 3. nóvember 2011.

Fyrirlesturinn er haldinn á vegum Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands, Stofnunar Sæmundar fróða og NASF, Verndarsjóðs villtra laxastofna.

Lesa meira
 
minkurinn

19.10.2011 : Pólverjar sækja í smiðju Íslendinga varðandi þekkingu á mink

Nýverið sótti pólskur minka sérfræðingur Náttúrustofuna heim í þeim tilgangi að afla gagna um rannsóknir, löggjöf, veiðistjórnun, veiðar og ræktun minka á Íslandi. Um var að ræða líffræðinginn Jakub Skorupski, sem starfar við Tækniháskóla Vestur-Pommern í Szczecin í Póllandi og er jafnframt verkefnastjóri hjá samtökunum Baltic Green Belt.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarfi 16 - 203 Kópavogur | s: 531 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar