Helstu fréttir
Guttlfoss orðið að sér 2 stanga svæði í Ytri Rangá
Laxveiðisvæðið Guttlfoss í Ytri Rangá er tveggja stanga svæði með 2 sleppitjörnum og að sjálfsögðu hinum gjöfula og fallega veiðistað Guttlfossbreiðu. Þetta veiðisvæði er beint fyrir ofan Árbæjarfossin og nær upp fyrir Geldingarlækjarós.
Allt agn er leyfilegt á svæðinu og fyrir þá sem nota flugur að þá mælum við með túpum og hraðsökkvandi taumi þar sem Ytri Rangá er fræg fyrir að vera köld og laxinn liggur djúpt.
Veiðileyfin verða seld frá morgni til kvölds. Og kostar stöngin 15.800.- pr. dag.
Nóg er um gistingu á svæðinu og mælum við með Ægissíðu á Hellu t.a.m.
Nú er búið að gera aðgengilegt og fallegt veiðikort af veiðistöðunum þar sem allir veiðistaðir eru vel merktir.
Laxastiginn við Árbæjarfossinn verður opnaður þann 25. júlí og hefst veiðin á Guttlfosssvæðinu þann 1. ágúst og verður veitt til 10. október.
Hægt er að kaupa veiðileyfi beint á vefnum www.agn.is
Nýtt og gott veiðikort sjá veiðikortasíðu.
kv. Ágúst - agust@lax-.is
