Helstu fréttir
Ytri Rangá - Réttarnes ódýrt og skemmtilegt svæði
Laxveiðisvæðið Réttarnes í Ytri Rangá er sex stanga svæði með 3 sleppitjörnum og er það efsta laxasvæðið í ánni og nær frá Bolholti og upp að Árgilsgljúfri (sjá veiðikortasíðu).
Allt agn er leyfilegt á svæðinu og fyrir þá sem nota flugur að þá mælum við með túpum og hraðsökkvandi taumi þar sem Ytri Rangá er fræg fyrir að vera köld og laxinn liggur djúpt.
Lax-á ehf hefur ákveðið að selja á þetta svæði ódýrt og kostar stöngin 5.800.- pr. dag. Veiðileyfin verða seld frá morgni til kvölds.
Nú er búið að gera aðgengilegt og fallegt veiðikort af veiðistöðunum þar sem allir veiðistaðir eru vel merktir.
Laxastiginn við Árbæjarfossinn verður opnaður þann 25. júlí og hefst veiðin á Réttarnesi þann 1. ágúst og verður veitt til 10. október.
Hægt er að kaupa veiðileyfi beint á www.agn.is
Nýtt og gott veiðikort sjá veiðikortasíðu.
Kv. Ágúst - agust@lax-a.is
