Helstu fréttir
Veiðileyfi í Reykjadalsá í Borgarfirði eru komin í sölu á agn.is
Nú eru jafnt og þétt að bætast við veiðisvæði hér á agn.is sem við erum með í sölu fyrir næsta veiðisumar.
Nú var að bætast við Reykjadalsá í Borgarfirði sem er gullfalleg laxveiðiá.
sjá betur með því að smella hér.
Hægt er að bóka veiðileyfi hér beint á vefnum agn.is undir tenglinum veiðileyfi hér vinstra megin á síðunni.
Vel gekk í Reykjadalsá í fyrra eða mesta veiði síðan 1975.
Það komu 15 laxar á land í lokuninni í Reykjadalsá í Borgarfirði.
" Við veiddum vel fyrri daginn og þar af 6 fiska í beit í Símastreng en seinni daginn voru erfiðar aðstæður -5 gr. um morguninn þegar við byrjuðum en við vorum ákveðin í því að hætta ekki fyrr en tvöhundruðasti laxinn kæmi á land og það tókst loksins í Mjóanesál."
sagði Óskar Færseth þegar við tókum tal af honum. Eins og áður sagði þá veiddust 200 laxar úr Reykjunni og er það mesta veiði í ánni síðan 1975 en þá veiddust 275 laxar.
Kv. Ágúst - agust@lax-a.is
