Helstu fréttir
Arnarvatnsheiðin ásamt veiðihúsum - komin í sölu á agn.is
Nú eru komin veiðileyfi á vefinn í Arnarvatnsheiðina að sunnanverðu og geta áhugasamir því gengið frá kaupum á veiðileyfum hér á vefnum tímanlega því eingöngu verða veiðileyfin seld hér á agn.is. Einnig geta veiðimenn pantað sér beint af vefnum.
Mikil aðsókn hefur verið í þessa glæsilegu veiðiparadís undanfarin misseri enda er þarna um eitt fallegasta og fjölbreyttasta veiðisvæði að ræða þar sem veitt er í fjölda vatna auk þeirra áa sem renna þar á heiðinni.
Veiðileyfin hér á vefnum gilda í öll þessi vötn og ár sem tilheyra Arnarvatnsheiðinni að sunnanverðu og eru vötnum vel á þriðja tuginn sem veitt er í.
Smellið hértil að sjá einhverjar myndir af Arnarvatnsheiðinni og lesið skemmtilega lýsingu á því sem hún hefur upp á að bjóða.
Kv. Ágúst - agust@lax-a.is
