Helstu fréttir
Alvöruferð - Flott Jólagjöf!
Acha áin , ævintýraleg bátsveiðiferð - 25.700.- krónur á dag!
Vikan sem er í boði er á frábærum tíma fyrir Acha ánna , það er fyrsta vikan í Júli , frá 1 Júlí til 8 Júlí.
Verðið er aðeins 25.700 á dag fyrir þessa frábæru veiði , 7 daga vikan er krónur 180.000.- og er allt innifalið í Rússlandi.
- Veiði í 7 daga.
- Leiðsögumaður.
- Fullt fæði og gisting. ( Gist er í tjöldum )
- Þyrluflug , Murmansk - Acha - Murmansk.
Birgir Georgsson með lax á í efri hluta Acha.
Ferðaplan:
30 Júní: Flug Keflavík - Helsinki. Gist á flugvallar hóteli í Helsinki.
1 Júlí: Flug Helsinki - Murmansk ( með einkaflugvél ). Frá Murmansk til Acha er flogið með þyrlu. Veitt um eftirmiðdaginn í Acha ánni.
2 - 3 - 4 - 5 - 6 - 7 Júlí er veitt í 6 heila daga.
8 Júlí , þyrluflug frá Acha til Murmansk , frá Murmansk til Helsinki með einka flugvél , frá Helsinki beint flug heim með Flugleiðum.
Umhverfið við Acha ána er stórkostlegt!
BÁTSFERÐ NIÐUR ACHA RIVER
Hér er sannkölluð ævintýraferð. Eitthvað sem allir þurfa að reyna að minnsta kosti einu sinni á langri veiðimannsævi. Sex manna holl eru flutt með þyrlu að efstu veiðistöðum árinnar Acha, sem er ein af þverám hinnar heimsfrægu Ponoi.
Þyrlan góða!
Þrír “flekar” eru á staðnum og fara þrír veiðimenn ásamt einum leiðsögumanni í tvo fleka. Vistir og tjöld eru á þriðja “flekanum” Það er lagt í’ann á laugardagseftirmiðdegi og næsta föstudagskvöld hafa veiðimennirnir lagt að baki tuttugu kílómetra niður Acha þar sem menn fara hægt yfir, stoppa við alla boðlega veiðistaði og þeir eru á hverju strái.
Þetta er í einu orði sagt stórkostlega falleg á og laxatorfur í öllum hyljum.
Gist er í tjöldum.
Hver stöng er að landa 35 til 60 löxum sem flestir eru á bilinu 10 til 18 pund á þessum tíma og þá erum við ekki að tala um alla sem láku af eða allar tökurnar!
Á föstudagskvöldinu koma veiðimenn í búðir sem þeir deila í eina nótt með veiðimönnum sem eru í Ponoi og eru kvöldvökurnar þegar hóparnir hittast töfrum þrungnir. Morguninn eftir fara hóparnir samferða til Murmansk og menn fara til sins heima sverjandi þess dýra eiða að koma aftur að ári!
MIKILVÆGAR UPPLÝSINGAR:
Alls er veitt í sex og hálfan dag.
-
Meðalveiði á stöng er sem fyrr segir 35 til 60 laxar.
-
Flestir eru laxarnir 10 til 18 pund.
-
Fyrstu bátsferðirnar eru snemma í júní og standa þær yfir fram í miðjan júlí.
-
Innifalið í verði er akstur til og frá Murmansk, Þyrluferðir , leiðsögumennirnir, öll veiðileyfi, aðbúnaður í tjöldunum og þrjár máltíðir á dag.
-
Ekki innifalið er allt áfengi. Menn geta haft eigin birgðir með sér, en það er líka hægt að festa kaup á því á staðnum á hóflegu verði. Þjórfé leiðsögumanna er heldur ekki innifalið.
Nánari upplýsingar, ferðaáætlanir og verð gefur:
Steffen Juhl á skrifstofu Lax-á á. s: 557-6100 – fax 557-6108 eða á netfangi steffen@lax-a.is
Árni Baldursson á skriftsofu Lax-a sími s: 557 6100 - fax 557 6108 eða á netfangi arnibald@lax-a.is
Varðeldur á hverju kvöldi! Carsten , Arni , Sasha og Birgir.
Gott er að komast síðasta daginn í Acha Camp við Ponoi , slaka á og bera saman bækurnar við veiðimennina sem veiddu Ponoi, alltaf smá keppni í gangi!
Steffen Juhl með einn góðan úr Acha.
