Helstu fréttir
Rjúpa
f.6 manns
6-9 bringur
1 msk smjör
Salt og pipar úr kvörn
Sósan:
Bein, leggir og fóarn úr rjúpu
1 epli
½-1 laukur
2 sellerístilkar
½ msk einiber
2-3 greinar ferskt timjan
2 dl rjómi
1 msk rifsberjasulta
Beinin og fóarnið, ásamt eplum, sellerí og lárviðarlaufi, nokkrum krömdum einiberjum og smávegis af timjani. Þegar þetta er orðið vel brúnað þá hellum við kjötsoði yfir (má vera af teningi). Þetta er látið sjóða í 2 tíma og veiðum þá það grófasta upp úr með gataspaða og sigtum svo soðið í gegnum fínt sigti.
Soðið er þykkt og svo er rjómanum bætt við. Að lokum setjum við rifsberjasultuna. Það er nauðsynlegt að hræra stöðugt í á meðan og er þörf er á má bæta við salti og pipar.
Bringurnar eru steikar á pönnu upp úr smjöri nokkrar mínútur á hvorri hlið, piprum og söltum og berum þær fram beint af pönnunni.
Með þessu er gott að bera fram Waldorfsalat.
verði ykkur af góðu
kveðja
Marta, marta@lax-a.is
