Helstu fréttir
Varmá - Þorleifslækur full af fiski
Valgeir sem er veiðivörður í Varmá – Þorleifslæk var að hringja á skrifstofuna og tilkynna okkur að Varmáin væri full af fiski og að fossinn sjálfur væri á fullu því fiskar væru stökkvandi þar á fullu.
Göngur af sjóbirtingi eru greinilega komnar í Varmána núna því Valgeir segist ekki muna eftir öðru eins og hefur hann samt séð margt.
kv. Ágúst - agust@lax-a.is
