Helstu fréttir

25POUNDER_toonken

Við erum byrjuð að bóka Río Grande 2006

7.8.2005

Árið 2004 opnaði sérhannað og glæsilegt veiðihús við veiðisvæðið Toon Ken. Það er staðsett á fallegum útsýnisstað rétt ofan við veiðisvæðið. Við hönnun hússins var mikil áhersla var lögð á þarfir veiðimanna og öll þægindi. Í veiðihúsinu er fluguhnýtingaraðstaða, vöðlugeymsla, setu- og borðstofa, bar, heitur pottur og skjólsæl verönd. Öll herbergin eru með sérbaðherbergi og er internet tenging í húsinu fyrir þá sem þurfa á slíku að halda í veiðiferðum.

 

Veiðimenn okkar í Toon Ken, Rio Grande 2004 og 2005 eru á einu máli um að nýja veiðihúsið fái hæstu mögulegu einkunn, hvað varðar góðan mat, ljúft starfsfólk, góð og hentug húsakynni.

Alls eru 7 stangir leyfðar í Toon Ken.  

kau tapen 2005 IIKau Tapen

Þið getið rétt ímyndað ykkur hvað þetta var GAMAN!!!

 

Toon Ken veiðisvæðið nær yfir efra og miðsvæði árinnar Rio Grande alls 20 km svæði, veitt er frá báðum bökkunum.  Rio Grande er auðveld yfirferðar og að vaða þar sem botninn er grýttur.  Þrátt fyrir það reyniri mikið á tækni og getu veiðimanna.  Sá stóri getur verið dintóttur og látið hafa fyrir sér.  Aðra stundina getur hann tekið niður við botninn en þá næstu komið stökkvani á þurrflugu í yfirborðinu!

Auk þess getur vatnsmagn árinnar breyst á stuttum tíma í kjölfar rigninga/þurrka.  Allar aðstæður hvetja veiðimanninn til að sýna hvað í honum býr og sýna tilbreytingu hvað tækni og flugur varðar!  Þá verður honum launað erfiðið !

 

G_Nordal_og_Kiddi_04jpgDSC00092

Kiddi Gunn og Gunni Norðdal skemmtu sér vel..... og Árni fékk þann stóra 27 pund!!

Alex 24 pounder from Toon Ken

Auður var fengsæl og kát með sinn feng - og sömuleiðis Andreas frá Sviss!

Sjóbirtingurinn í Rio Grande liggur yfirleitt nálægt bakkanum yfir miðjan daginn en ef vatnsyfirborðið er lágt kjósa þeir fremur hraðara vatn við enda veiðistaðanna.  Eins og venja er ferðast þeir mest snemma morguns, síðdegis og í ljósaskiptunum.

DSCF0159

 

Leiðsögumenn okkar í Toon Ken eru margreyndir leiðsögu- og veiðimenn.  Þeir eru mjög kunnugir ánni og dyntum þess stóra og því um að gera að nýta þekkingu þeirra til hins ítrasta.  Leiðsögumennirnir hjálpa svo til við að löndun og sleppingu.

Oftast er veitt með flotlínu og þurrflugum.

Aðallega veiðist þarna hin margrómaði RISA sjóbirtingur af meðalvikt 12 pund! En menn geta þó alltaf átt von á að setja í þann stóra, allt frá 24-30+ pund!!!  Auk þess veiðast þarna urriði og regnbogasilungur.

Framlengja ferðina?? Það eru margir spennandi kostir í boði, skotveiðar á dúfum, öndum eða gæsum í Cordoba og Buenos Aries - 3 dagar á sérkjörum fyrir þá sem taka viku á Rio Grande. Einnig er hægt að fara í Dorado veiði til Corrientes eða á stórdýraveiðar um alla Argentínu t.d. Red Stag, Buffalo, Puma ofl. ofl.

Við getum með ánægju haldið myndasýningar fyrir áhugasama á skrifstofu Lax-á eða hitt hópa sem eru í veiðiferð í veiðihúsunum okkar í sumar.  Boðið er upp á eðal rauðvín frá Argentínu á meðan á sýningu stendur. Þið getið einnig fengið fría geisladiska hér á skrifstofunni sem lýsa ævintýrinu.



Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

bigfish

31.5.2013 : Heimsins stærsti lax

Þann 17. Maí, 1985 landaði Les Anderson frá Soldotna laxi sem sló öll skráð heimsmet en hann var 97 pund og veiddur í Kenai ánni í Alaska. Lesa meira
 
Arni.

24.5.2013 : 9 góðar ástæður fyrir að fara að veiða

hérna eru 9 góðar ástæður fyrir að skella sér út að veiða.. |nl| |nl|1. Vinnan þín bindur þig inni á skrifstofu allan daginn og þú ert örvæntingafull/ur að komast út í náttúruna, finna hlýju goluna á sumrin og engin betri leið til að gera það en að skella sér út að veiða. Lesa meira
 
DEE511

1.11.2012 : Dádýraveiði í Skotlandi

Við Hjá lax-á getum núna boðið uppá Roebuck veiði í Skotlandi en Roebuck eru lítil dádýr sem eru stygg og mjög skemmtileg að veiða. Veiðitímabilið byrjar í Apríl og endar í Oktober með einhverjum stefan@lax-a.is Lesa meira
 
DSC01863

30.10.2012 : Grænland 2013

Töluvert er um að menn séu byrjaðir að skoða Grænland fyrir næsta sumar en Grænland sló rækilega í gegn í fyrrasumar. Nýja veiðihúsið er hið glæsilegasta og hefur vakið mikla kátínu Lesa meira
 
Heklubyggd1(7)

13.7.2012 : Sumarhús í Heklubyggð til leigu

Við erum með tvö glæsilega sumarhús til leigu í Heklubyggð, landi Svínhaga við Ytri Rangá. Bústaðirnir eru byggðir á árunum 2004 til 2008 og eru mjög vel útbúnir. Báðir bústaðir eru vel útbúnir. Lesa meira
 
1

28.3.2012 : Vorljóð frá Sveini á Galtalæk

Vinur okkar og landeigandi á Galtalæk Sveinn Sigurjónsson sendi okkur fallegt vorljóð sem varð til í gærkvöldi. Afar skemmtilegt ljóð í tilefni vorkomu og þess að veiði hefst í Galtlæk eftir einungis nokkra daga.

Lesa meira
 
DSC00337

19.3.2012 : Kúba - Paredon 21-28. apríl

Eigum lausar tvær stangir á besta tíma á Kúbu fyrir Tarpon, Bonefish og Permit veiðar. Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við Árna arnibald@lax-a.is eða í GSM 898 3601.

Lesa meira
 
Axeló á Hreindýri8

20.2.2012 : 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða

Umhverfisstofnun hefur borist 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða. Endanlegur fjöldi er ekki enn ljós þar sem einhverjar umsóknir gætu verið á leiðinni í pósti. Heimilt verður að veiða 1009 dýr. Þegar allar umsóknir verða komnar í hús verður farið yfir þær með tilliti til hvort allir sem sækja um leyfi hafi tilskilin réttindi. Dregið verður úr gildum umsóknum í lok febrúar.

Lesa meira
 
4

16.2.2012 : Laxasetur Íslands óskar eftir aðstoð

Laxasetur Íslands opnar í sumar. Af því tilefni vantar okkur gamla muni sem tengjast lax- og silungsveiði á Íslandi. Munirnir verða til sýnis á setrinu ásamt upplýsingum um uppruna og sögu. Við leitum eftir munum ýmist gefins eða að láni.

Nánari upplýsingar veita verkefnastjórar sýningarinnar, Helga og Kristín hjá mekt.menningarmidlun@gmail.com

Lesa meira
 
RISE

7.2.2012 : RISE Kvikmyndahátíð haldin í annað sinn

RISE fluguveiði kvikmyndahátíð verður haldin í annað sinn 10. mars næstkomandi í Bío Paradís (Hverfisgötu 54) en hátíðin var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í febrúar á síðasta ári. Hátíðinni var gríðarlega vel tekið og var uppselt á sýninguna í fyrra. Sýningin hefst kl. 20:00 en húsið opna kl. 19:00.

Lesa meira
 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarfi 16 - 203 Kópavogur | s: 531 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar