Helstu fréttir
Miðfjarðará
Búið er að bóka 47 laxa. 21 úr Vesturá, 20 úr Austurá, 6 úr Miðfjarðará en enn hefur enginn náðst úr Núpsá.
Í Vesturá eru flestir fiskarnir að koma úr Kistunum og Hlíðarfossi. Þeir eru á bilinu 3-6 kg og flestir 5 kg.
Í Austurá eru flestir fiskarnir að koma úr Neðri Hlaupum. Þeir eru á bilinum 3-9 kg en flestir frá 4,5-7 kg.
Í Miðfjarðará eru fiskarnir á bilinu 2,5- 6kg en enginn veiðistaður er að skera sig úr hvað fjölda varðar.
Í gær veiddust 4 laxar og voru Kiddi og Gísli “pípari” með þá alla.
kv Stefán
