Helstu fréttir
Allt vaðandi í fiski á Vatnasvæði Lýsu
Tveir veiðimenn voru að veiði í Vatnasvæði Lýsu um helgina og tóku þeir 46 fiska, 38 bleikjur, 2 sjóbirtinga og 6 urriða og var fiskurinn á milli 2-3 pund.
Einnig fengum við fréttir af því að það sé allt morandi í fiski þessa stundina í vatnasvæði Lýsu svo það er tilvalið að kíkja þangað og setja í nokkra.
Hægt er að versla veiðileyfi á vefnum agn.is í Vatnasvæði Lýsu með því að smella hér.
Meðfylgjandi mynd er af veiðimönnunum með hluta af aflanum.
Kv. Ágúst
